Laugardaginn 7. september munu fleiri vagnar aka á leið 55 í tilefni Ljósanætur í Reykjanesbæ.
Til Reykjanesbæjar
Tveir aukavagnar fara frá Firði í Hafnarfirði á sama tíma og áætlunarvagnar, annar þeirra fer kl.17:53 og hinn kl. 19:53 og endar akstur beggja við Hringbraut/Melteig í Keflavík. Þessir vagnar stoppa á eftirfarandi stoppistöðum: Fjörður – Sveitarfélagið Vogar – Hringbraut/Melteigur.
Frá Reykjanesbæ
Þegar hátíð lýkur verða farnar þrjár aukaferðir frá Hringbraut/Melteig í Keflavík utan tímatöflu, ein kl. 22:45 og tvær kl. 23:15 og endar akstur þeirra vagna við BSÍ. Þessir vagnar stoppa á eftirfarandi stoppistöðum: Hringbraut/Melteigur – Sveitarfélagið Vogar – Fjörður – Ásgarður – Kringlumýrarbraut – Hlíðar – Klambratún – BSÍ.