Gríðarleg umferðaraukning á höfuðborgarsvæðinu
umferðin í janúar jókst um ríflega níu prósent
Umferðin um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst gríðarlega í janúar miðað við sama mánuð í fyrra eða um ríflega níu prósent. Að meðaltali hefur umferðin um mælisniðin aukist um 2,8 prósent í janúarmánuði frá árinu 2005. Þetta bendir til þess að umferðin í ár gæti aukist um fimm prósent.
Milli mánaða 2016 og 2017
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst gríðarlega mikið, í nýliðnum
janúar borið saman við sama mánuð á síðasta ári, eða um rúmlega 9%. Nú hefur
umferðin aukist að jafnaði um 2,8% í janúar milli ára frá árinu 2005.
Þannig að aukningin nú er rúmlega þreföld meðaltalsaukning í janúar.
Umferðin í janúar hefur aldrei verið meiri auk þess var sett nýtt met hlutfallslegum vexti, í umræddum mánuði, á milli ára. Mest jókst umferðin um mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi eða um tæp 10%. Um það snið fóru rúmlega 53 þúsund ökutæki á dag að jafnaði, sem jafnframt reyndist umferðarmesta mælisniðið. Umferðarminnsta mælisniðið reyndist vera á Hafnarfjarðarvegi, sunnan Kópavogslækjar, með rúmlega 43 þúsund ökutæki á sólarhring. Alls fóru rúmlega 146 þúsund ökutæki daglega um mælisniðin þrjú í nýliðnum janúar.
Umferð eftir vikudögum.
Mest jókst umferðin á föstudögum eða um rúmlega 20% miðað við sama
tímabil á síðasta ári. Þetta er athyglisverð aukning þar sem föstudagarnir
eru jafnframt þeir umferðarmestu. Minnst jókst umferðin á sunnudögum eða um tæpt 1%, sem jafnframt voru umferðarminnstu vikudagar í janúar.
Horfur út árið.
Svona mikil aukning í janúar gefur vísbendingu um að
umferðin, á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2017, geti orðið í kringum 5% meiri
nú í ár miðað við síðasta ár.
Ath. allar umferðartölur á yfirstandandi ári eru birtar með fyrirvara, þar sem gögnin eru eingöngu grófrýnd.