Bundin slitlög - betri vegir
Ráðstefna um malbik og klæðingar í Hörpu 14. september 2021.
Bundin slitlög – betri vegir var yfirheiti ráðstefnu sem Vegagerðin hélt í Hörpu 14. september síðastliðinn. Ráðstefnan var vel sótt en 130 manns voru mættir í Hörpu og enn fleiri fylgdust með beinu streymi frá ráðstefnunni. Á ráðstefnunni var fjallað um malbik og klæðingar frá mörgum sjónarhornum. Farið var yfir söguna, stöðuna í dag, hugað að umhverfisáhrifum og endurvinnslu auk þess sem erlendir fyrirlesarar vörpuðu ljósi á notkun bundinna slitlaga í sínum heimalöndum.
Dagskráin var þétt og þótti gefa góða innsýn inn í málefni bundinna slitlaga. Fyrirlestrarnir voru afar áhugaverðir en glærukynningar allra fyrirlesara má finna hér fyrir neðan. Einnig er hér á síðunni upptaka af ráðstefnunni í heild.
Fyrirlestrar og hlekkir á glærukynningar
Af mölinni á bundna slitlagið. Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar |
Common praxis and experiences of bitumen bound surface layers. Kenneth Lind, sérfræðingur í vegtækni og bundnum slitlögum, Trafikverket í Svíþjóð |
Auknar kröfur - breyttar reglur. Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar |
Yfirborð bikbundinna vega - rýni Sigurður Erlingsson, prófessor umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands |
Ending malbikaðra slitlaga – samanburður á helstu stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu.Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir, byggingatæknifræðingur, Eflu |
Advanced asphalt surface treatment - technologies using bio-based materials Bert Jan Lommerts, framkvæmdastjóri og eigandi Reddy Solutions, Hollandi |
The importance of friction for motocyclist - experiences from Sweden Maria Nordqvist, Sveriges MotorCyklister |
Endurvinnsla í vegagerð. Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir hjá ReSource |
Endurvinnsla í malbik - tækifæri til framtíðar. Björk Úlfarsdóttir rannsóknarstjóri og Harpa Þrastardóttir umhverfis-, öryggis-, og gæðastjóri, Colas Ísland |
Frá vöggu til grafar - meðhöndlun efna við slitlagnir. Páll Kolka, umhverfissérfræðingur Vegagerðarinnar |
Viðhald bundinna slitlaga - mat á viðhaldsþörf. Jón Magnússon sérfræðingur framkvæmdadeild Vegagerðarinnar |
An overview of skid resistance in the UK. David Woodward, verkfræði innviða, Ulster háskólanum Norður-Írlandi |
Efnisgæðarit Vegagerðarinnar - fróðleikur og kröfur til vegagerðarefna. Pétur Pétursson sérfræðingur stoðdeild Vegagerðarinnar |
Ódýrara malbik - færanlegar malbiksstöðvar. Sigþór Sigurðsson, forstjóri Colas Ísland |
Nýsköpun og þróun innan og utan Vegagerðarinnar. Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsóknadeildar Vegagerðarinnar |