Rannsóknarstefna Vegagerðarinnar
Starf rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar tekur mið af hlutverki, markmiðum og framtíðarsýn stofnunarinnar. Á markvissan hátt er greind þörf fyrir rannsóknir og verkefnum forgangsraðað með áherslu á skilvirkni rannsókna.
Lögð er áhersla á hagnýtar rannsóknir og þróun, en einnig er gert ráð fyrir þátttöku í grunnrannsóknum sem tengjast starfsemi stofnunarinnar.
Markmið rannsóknasjóðs eru að:
- hafa frumkvæði að rannsókna- og þróunarstarfi sem stuðlar að því að Vegagerðin geti sinnt hlutverki sínu
- afla nýrrar þekkingar og innleiða hana í starfsemi Vegagerðarinnar
- stuðla að samvinnu þeirra sem bera ábyrgð á og stunda rannsóknir á sviði Vegagerðarinnar
- stuðla að nýliðun innan fagsviða sem tengjast starfsemi Vegagerðarinnar með samstarfi við háskólastofnanir
- kynna rannsóknir og niðurstöður þeirra
Samþykkt í yfirstjórn Vegagerðarinnar 12.10.2015