Aldrei meira ekið á Hringveginum í október
stefnir í metaukningu í ár á Hringveginum
Umferðin á Hringveginum í nýliðnum októbermánuði jókst um meira en 15 prósent frá sama mánuði í fyrra og aldrei áður hefur umferðin í október aukist jafnmikið. Umferðin um Suðurlandið jókst um ríflega 22 prósent. Nú er útlit fyrir að umferðin á Hringveginum í ár verði 11 prósentum meiri en í fyrra og yrði það þá næst mesta aukning frá því að þessi samantekt hófst árið 2005. Búast má við að góð tíð í október hafi eitthvað með þessa miklu aukningu að segja.
Milli mánaða 2016 og 2017
Met aukning
varð í nýliðnum október borið saman við sama mánuð á síðasta ári eða aukning upp á 15,1%. Aldrei áður hefur umferð aukist jafn mikið milli október mánaða
frá því að þessi samantekt hófst. Mikil aukning varð á öllum landssvæðum en
mest jókst umferðin um Suðurland eða um 22,1% en minnst um Norður- og Austurland
eða um 13,2%, af einstaka
talningarstöðum. Umferðin í
október hefur að jafnaði aukist mest frá árinu 2005 eða um 4,3% á ári. Þessi
aukning nú er því 3,5 sinnum meiri en meðaltalsaukningin.
Frá áramótum milli 2016 og 2017
Frá
áramótum hefur umferðin nú aukist um 11,1% og er það rétt undir stöðunni, eins
og hún var fyrir ári síðan en þá hafði umferðin aukist um 12,9% miðað við árið þar á
undan.
Mest hefur umferð aukist um Suðurland eða um 15,8%, það sem af er ári, en minnst um Vesturland eða um 8,9%
Umferð vikudaga áranna 2016 og 2017
Miðað við
það sem liðið er af árinu þá hefur umferð aukist mest á þriðjudögum sem eru
jafnframt umferðarminnstu dagarnir. Minnst hefur umferð aukist á
sunnudögum.
Lang mest er ekið á föstudögum.
Horfur út árið 2017
Þegar
aðeins tveir mánuðir eru eftir af árinu 2017 eru líkur á því að umferðin aukist
um 11%. Gangi þetta eftir yrði það gríðarlega mikil aukning og sú næst mesta
frá því að þessi samantekt hófst.