Hvalfjarðargöng (1): Ljósleiðarakerfi, endurbætur
Tilboð opnuð 22. október 2019. Lagning ljósleiðararöra ásamt lagningu ljósleiðara og tenginga í og við Hvalfjarðargöng.
Verkið felur í sér lagningu ljósleiðararöra, uppsetningu fjarskiptaskápa, blástur og/eða ídrátt ljósleiðarastrengja ásamt tengingum þeirra í og við Hvalfjarðargöng. Hvalfjarðargöng liggja undir Hvalfjörð og eru um 5,8 km löng. Ljósleiðarakerfið hefur það hlutverk að tengja saman allan þann búnað sem þarf að tala saman í göngunum ásamt að tryggja að öll fjarskipti innan ganga ásamt til og frá göngum gangi vel fyrir sig.
Ídráttur átta 12mm ljósleiðararöra í 75mm ídráttarrör 5.900 m
Ljósleiðari 4.230 m
Uppsetning á 50mm rörum í þak ganga við öll tæknirými 261 m
Fjarskiptaskápar í göngum 4 stk.
Tengihilla fyrir ljósleiðara í fjarskiptaskáp 12 stk.
(528 splæsingar í það heila í þessar 12 tengihillur)
Ljósleiðarasplæsingar 404 stk.
Mælingar á ljósleiðara HT
Verki skal lokið að fullu 29. febrúar 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 40.840.050 | 100,0 | 20.908 |
Berg Verktakar ehf., Reykjavík | 29.644.350 | 72,6 | 9.712 |
BB rafverktakar, Reykjavík | 20.100.000 | 49,2 | 168 |
Rafal ehf., Hafnarfirði | 19.932.408 | 48,8 | 0 |