Vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu í Hvalfjarðargöngum verða göngin lokuð á kvöldin frá kl. 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna, á tímabilinu 7. apríl til 29. maí. Framkvæmdin er liður í því að tryggja öryggi vegfarenda og uppfæra mikilvæga innviði í samræmi við nútímakröfur.
Ljóst er að lokanirnar munu hafa áhrif á umferð, en þær eru óhjákvæmilegar til að unnt sé að framkvæma verkið með fullnægjandi öryggi.

Núverandi lýsing í Hvalfjarðargöngum hefur verið í notkun frá opnun þeirra. Framleiðslu á perum fyrir þann búnað hefur nú verið hætt og birgðir að klárast. Með aukinni umferð um göngin er orðið brýnt að ráðast í heildaruppfærslu á lýsingunni, svo hún uppfylli nútímakröfur og tryggi sem best öryggi allra vegfarenda.
Framkvæmdin er umfangsmikil og af öryggisástæðum er ekki hægt að vinna verkið meðan göngin eru opin fyrir umferð. Því er nauðsynlegt að loka þeim á kvöldin til að hægt sé að vinna verkið á skilvirkan og öruggan hátt án hættu fyrir starfsfólk eða ökumenn. Með því að vinna verkið á nóttunni er reynt að lágmarka áhrif á daglega umferð eins og kostur er.
Í framkvæmdinni verður eldri búnaður fjarlægður og settir upp nýir, dimmanlegir LED-lampar sem uppfylla kröfur um lýsingu og öryggi í jarðgöngum. Með þessari uppfærslu verður lýsing í göngunum bæði betri og orkunýtnari.