Vaktstöð í vetrarþjónustu er á Ísafirði. Sjá nánar í reglum um vetrarþjónustu og gæðastaðall og þjónustuflokkun. Fjöldi bíla er meðalumferð á dag mánuðina janúar, febrúar, mars og desember (nákvæmni 25 bílar). Vegbreidd er meðalbreidd á viðkomandi kafla (nákvæmni 0,5 m).
Vegir eru þjónustaðir eins og sýnt er í eftirfarandi töflu:
* Vegur 84 um Víkurskarð:
Í mildu veðri þar sem ekki er mikil ofankoma og vindur,er vegurinn þjónustaður samkv. þjónustuflokki 3 og þjónusta hefst um kl. 07:30 og lýkur um kl. 20:00 á virkum dögum.
Þegar færð fer að spillast og mikil snjósöfnun verður á vegum áskilur Vegagerðin sér rétt til þess að skerða þjónustu um Víkurskarð.
Lokun á Víkurskarði skal vera þannig að þegar færð er farin að spillast og vindur er kominn í 10 m/sek með úrkomu og/eða skafrenningi, og veðurspáin er versnandi þá skal hætta mokstri.
Ekki verður farið í opnun vegar fyrr en vindur er kominn niður fyrir 10 m/sek og veðurspá batnandi og úrkoma og skafrenningur eru hætt. Opnun á Víkurskarði nýtur ekki forgangs þannig að ef mikið álag er í snjómokstri þá ganga aðrar leiðir fyrir og opnun fer fram um leið og allar aðalleiðir eru orðnar færar.
Tímasetningar hér að ofan eru miðaðar við meðal snjóalög. Í miklum snjó er gert ráð fyrir að opnun vega geti verið seinni en að ofan greinir.
Listi yfir staði sem eru hálkuvarðir
Listi yfir keðjunarstaði, vigtunarstaði og/eða áningarstaði sem eru ruddir
Vegur | Kafli | Stöð | Heiti | Stærð (m2) |
1 | p9 | 450 | Leirurampur | 350 |
1 | q2 | 4540 | Víkurskarð, vestan | 500 |
1 | q3 | 10280 | Víkurskarð, austan | 450 |
1 | q5 | 13660 | Kross | 550 |