| |
D06.51 Snúningssvæði til hægri | D06.52 Snúningssvæði til vinstri |
Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta er notað þar sem snúa má löngum ökutækjum við, svo sem í jarðgöngum. Nánari upplýsingar má letra á undirmerki (J).
Vinnureglur um notkun:
D06.51 Snúningssvæði til hægri.
D06.52 Snúningssvæði til vinstri.
Til viðbótar við merkingu á snúningssvæðinu sjálfu má nota annað D06.51/52 merki ásamt undirmerki J10.11
um 500 m fyrir framan snúningssvæðið.