Reglugerð um umferðarmerki: Vegnúmer Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis: Merkið sýnir númer viðkomandi vegar. Merkið skal setja upp við alla stofn- og tengivegi nema vegi styttri en 5 km þar sem vegnúmer er á vegvísi út á viðkomandi veg. Vegamót: Merkið skal sett upp 500-1000 m frá vegamótum fyrir umferð frá vegamótunum. Ef tvö eða fleiri vegamót við þjóðvegi eru á 3 km kafla eða styttra skal merkja þau eins og um ein vegamót væri að ræða, þ.e. með merki út frá vegamótum í enda kaflans en merkjum á milli þeirra sleppt. Merkið skal einnig nota áður en komið er að vegamótum við þjóðvegi í 500-1000 m fjarlægð ef lengd frá síðasta vegnúmeri er á bilinu 20-30 km. Langir kaflar án vegamóta: Merkið skal sett upp fyrir báðar akstursstefnur með um 15 km millibili ef fjarlægð frá síðasta vegnúmeri er meiri en 30 km. Notkun samhliða öðrum merkjum: Setja skal vegnúmer með aðalbrautarmerkjum D03.11 og aðalbraut endar D03.21 . Einnig með B26 þar sem það á við, sjá reglur um merkingar aðalbrauta og hraðamerkingar. Að jafnaði skal fella vegnúmer F16.11 inn í öll F leiðamerki þar sem vísað er á vegi með númeri.