Merki þetta gefur til kynna að ökumanni sé skylt að veita umferð sem kemur á móti forgang.
Merki þetta gefur til kynna að umferð á móti veiti forgang.
Eldri reglur
B25.11 Skylt að veita umferð sem kemur á móti forgang
Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta má nota við vegarkafla eða stað á vegi þar sem aðstæður eru þannig að ökutæki geta ekki mæst og skylt er að veita umferð sem kemur á móti forgang. Þegar merki þetta er notað skal setja merkið D05.11 upp við hinn enda vegarkafla eða hindrunar. Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis: Dæmi um notkun eru einbreið jarðgöng þar sem önnur akstursstefnan nýtur forgangs en hin á að víkja í til þess gerð útskot. Merkið skal staðsett minnst 50 m áður en komið er að þeim kafla sem merkið höfðar til. Lengd kafla skal gefin upp á undirmerki J02.11 ef kaflinn er lengri en 50m. Þegar merkið er notað vegna merkingar vinnusvæðis má eingöngu nota það á vegum með árdagsumferð undir 1000 bílum og á styttri kafla en 50 m, annars skal nota umferðarljós eða handvirka umferðarstjórnun. Vinnureglur um notkun innan þéttbýlis: Ef sett er upp merking um að umferð á móti veiti eða hafi forgang er sú umferð sem hefur takmarkaðri vegsýn látin víkja. Sjá dæmi um notkun merkisins á eftirtöldum skýringarmyndum: Merking þrengingar í þéttbýli Sjá nánar um notkun merkisins í reglum um vinnusvæðamerkingar. D05.11 Umferð á móti veitir forgang Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað við annan enda vegarkafla þar sem merkið B25.11 er við hinn endann. Dæmi um notkun eru einbreið jarðgöng þar sem önnur akstursstefnan nýtur forgangs en hin á að víkja í til þess gerð útskot. Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis: Merkið skal staðsett minnst 50 m áður en komið er að þeim kafla sem merkið höfðar til. Lengd kafla skal gefin upp á undirmerki J02.11 ef kaflinn er lengri en 50m. Þegar merkið er notað vegna merkingar vinnusvæðis má eingöngu nota það á vegum með árdagsumferð undir 1000 bílum og á styttri kafla en 50 m, annars skal nota umferðarljós eða handvirka umferðarstjórnun. Vinnureglur um notkun innan þéttbýlis: Ef sett er upp merking um að umferð á móti veiti eða hafi forgang er sú umferð sem hefur takmarkaðri vegsýn látin víkja. Sjá dæmi um notkun merkisins á eftirtöldum skýringarmyndum: Merking þrengingar í þéttbýli Sjá nánar um notkun merkisins í reglum um vinnusvæðamerkingar.