- Á móti aðliggjandi akbraut skal vera þverslá K20.21 (hæð 50 sm) ásamt tveimur merkjum C01.11. Æskilegt er að merkin séu upplýst.
- Við akbraut að hringtorgi í hægra horni 2 - 6 m frá hringtorgi skulu vera merkin A06.11 og C12.11
- Á enda umferðareyju sem aðskilur akbrautir að og frá hringtorgi skulu vera merkin C09.11 og K12.12. Merkin skulu vera upplýst.
- Merkin A10.11 og J01.11 skulu vera á hægri kanti aðliggjandi akreinar 150 - 200 m frá hringtorgi.
- Merkið F09.51 skal vera á hægri kanti aðliggjandi akreinar 300 - 400 m frá hringtorgi.
|