Nýlegur áningarstaður á Nesvegi um 8 km sunnan við Hafnir. Þarna er gott malbikað plan með góðri aðstöðu fyrir hópbíla. Á staðnum hefur verið byggð brú yfir sprungu sem sýnir landrek mjög vel.