- Sitt hvoru megin 500 m frá vegamótum við þjóðvegi fyrir umferð sem ekur frá vegamótunum. Ef tvö eða fleiri vegamót við þjóðvegi eru á 3 km kafla eða styttri skal merkja þau eins og um ein vegamót væri að ræða, þ.e. með merki út frá vegamótum í endum kaflans og merkjum á milli þeirra sleppt
- Áður en komið er að vegamótum með lækkuðum hámarkshraða í 500 m fjarlægð frá vegamótum
- Áður en komið er að vegamótum í 500 m fjarlægð frá vegamótum ef vegalengd frá síðasta hraðamerki er á milli 20 til 30 km
- Fyrir báðar akstursstefnur með að jafnaði ca. 15 km millibili ef fjarlægð frá síðasta hraðamerki er meiri en 30 km, nema þar sem aðalbraut liggur um óbyggð svæði og engin biðskyldumerki eru fyrir hendi. Í þeim tilfellum skal setja merki 500-1000 m áður en komið er að fyrsta afleggjara með biðskyldumerki.
- Utan við mörk þéttbýlis (á vegum lengri en 2 km) og utan marka þeirra svæða þar sem sérstakar fastar hraðatakmarkanir eru í gildi skal að jafnaði setja upp merki 200-500 m utan við merki D12.21 þéttbýli lýkur eða þar sem sérstökum hraðatakmörkunum lýkur
- Þar sem stuttur tengivegur (< 2 km) frá þéttbýli tengist inn á stofnbraut skulu merkin að jafnaði staðsett 200-300 m sitt hvorum megin við vegamótin (t.d. við Hólmavík, Þórshöfn, Djúpavog)
|