Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað þar sem æskilegt þykir að gefa til kynna að einstefnuakstur sé á vegi. Ef henta þykir má setja merkið þannig að örin vísi upp. Merkið B01.21 skal vera við hinn enda vegar. Vinnureglur um notkun: Merkið skal sett á þann stað þar sem einstefna byrjar. Dæmi um merkingu einstefnuhverfis. Sjá einnig skýringarmynd um merkingar tvístefnu.