D01.21 Bifreiðastæði fyrir fatlaða Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna bifreiðastæði sem eingöngu er ætlað fötluðum. Einnig er heimilt að nota merki D01.11 með undirmerki J11.11 . D01.22 Bifreiðastæði fyrir fatlaða með skráningarmerki bifreiðar Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna bifreiðastæði sem eingöngu er ætlað fötluðum einstaklingi. Til áréttingar er skráningarmerki bifreiðar tilgreint.
D01.31 Bifreiðastæði fyrir hópbifreiðir Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna hvar eru bifreiðastæði sem eingöngu eru ætluð hópbifreiðum. D01.32 Bifreiðastæði fyrir vörubifreiðir Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna hvar eru bifreiðastæði sem eingöngu eru ætluð vörubifreiðum. D01.33 Bifreiðastæði fyrir fólksbifreiðir Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna hvar eru bifreiðastæði sem eingöngu eru ætluð fólksbifreiðum. D01.34 Bifreiðastæði með rafhleðslu Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna bifreiðastæði sem eingöngu eru ætluð bifreiðum sem þurfa rafhleðslu. D01.35 Bifreiðastæði fyrir húsbíla Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna bifeiðastæði sem eingöngu eru ætluð húsbílum. D01.37 Bifreiðastæði fyrir sjúkrabifreiðar Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna bifreiðastæði sem eingöngu eru ætluð sjúkrabifreiðum. D01.41 Stæði fyrir reiðhjól Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna stæði sem eingöngu eru ætluð reiðhjólum. D01.42 Stæði fyrir mótorhjól Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna stæði sem eingöngu eru ætluð mótorhjólum.