Áningarstaðir Vegagerðin býður ferðafólk á þjóðvegum landsins velkomið að njóta náttúru Íslands á fjölmörgum og margvíslegum áningarstöðum sem útbúnir hafa verið víðs vegar um Ísland. Nokkru áður en komið er að stöðunum og við útafkeyrsluna eru viðeigandi upplýsingamerki til ábendingar. Upplýsingar og aðstaða fyrir ferðafólk Áningarstaðir eru margvíslegir að stærð, gerð og útbúnaði. Markmið þeirra er að skapa ferðamönnum þægilega og örugga aðstöðu við þjóðvegi landsins til að staldra við á áhugaverðum stöðum og njóta umhverfisins. Víðast er aðstaða til að borða nesti, oft fróðleikur á skiltum um sögu eða hindurvitni í nánasta umhverfi auk þjónustu- og leiðbeiningaupplýsinga. Umhirða, uppsetning skilta og merking Upplýsingar um útbúnað / aðstöðu Kortið hér að neðan sýnir staðsetningu helstu áningarstaða Vegagerðarinnar auk upplýsingaútskota, útskota, opins skógs, valinni vita og ferðamannabílastæða Á þessum stöðum er margvíslegur búnaður.