Vegagerðin býður ferðafólk á þjóðvegum landsins velkomið að njóta náttúru Íslands á fjölmörgum og margvíslegum áningarstöðum sem útbúnir hafa verið víðsvegar um ísland. Nokkru áðir en komið er að stöðunum og við útafkeyrsluna eru viðeigandi upplýsingamerki í vegkantinum til ábendingar. Umhirða áningarstaða Uppsetning skilta - leiðbeiningar Einfalt skilti - rammi og uppsetning Skýringarmynd - festing ramma við jörð og við miðjustoð Sérskilti - rammi og uppsetning Grunnlitir notaðir á skiltum VG Landshlutaskilti og Svæðisskilti - rammi og uppsetning Tvöfalt svæðisskilti - rammi og uppsetning Merkingar áningarstaða Merki E02.63 er einkum notað til að merkja áningarstaði en stundum eru þó önnur merki notuð.
Æskilegt er að hefja vegvísun að áningarstað á undirmerki J10.11 a.m.k. 500 m fyrir framan áningarstað.
Leitast skal við að merkja áningarstaði sem eru innan við 1 km frá vegi sem vísað er frá með undirmerki J10.11 og tilheyrandi vísunarmerki J12 .
Þar sem ekið er út af vegi að áningarstað skal merkið staðsett sömu megin og áningarstaðurinn.
Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna hvar bifreiðastæði eru.
Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að sýna hvar eru útskot við veg sem sérstaklega eru ætluð fyrir ökumenn sem þurfa að setja á keðjur eða taka af, gjarnan við heiðarsporða.