Reglugerð um umferðarmerki: Merki þetta er notað til að gefa til kynna að vegur sé lokaður í annan endann. Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis: Merkið skal sett þar sem viðkomandi vegur sem lokaður er í annan endann byrjar. Ef lengd að lokun er meiri en 1 km skal gefa upp rétta lengd að lokun með undirmerki J10.11 . Merkið má jafnframt nota á bráðabirgðamerki (H). Vinnureglur um notkun innan þéttbýlis: Dæmi um notkun merkisins. Annað dæmi um notkun merkisins - sjá skýringarmynd með merki D07.11 einstefnu