Auglýst útboð
Hafnarvegur (44), Stapafell – Hafnir, styrkingar og endurbætur
Vegagerðin býður hér með út styrkingu og endurmótun á 4,6 km kafla Hafnavegar, milli Stapafells og Hafna. Fræsa skal veginn upp, breikka, bæta við burðarlagi og leggja á klæðingu.Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 825 m3
- Lögn stálræsa 36 m
- Fyllingar/styrktarlag og fláafleygar 8.985 m3
- Burðarlag 0/22 8.167 m3
- Tvöföld klæðing 35.981 m2
- Gróffræsun 30.000 m2
- Frágangur fláa og vegsvæðis 39.943 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. september 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 29. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.